Álag á samhæfingarmiðstöð minnkar eilítið 14. desember 2007 11:00 Strætóskýli fauk upp á ellefta tímanum í morgun á Krókhálsi. MYND/Sigríður Guðlaugsdóttir
Um 130 björgunarsveitarmenn eru nú að störfum í höfuðborgarsvæðinu ásamt lögreglu og slökkviliði og segja almannavarnir að vel gangi að sinna þeim beiðnum um aðstoð sem borist hafa. Þær eru á níunda tug það sem af er degi. Álag á samhæfingarstöðinni í Skógarhlíð hefur aðeins minnkað en þessa stundina er mest um hvers kyns fok auk þess sem vatn er farið að safnast í kringum niðurföll. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur fólk til að vera ekki á ferli að nauðsynjalausu. Þegar hafa foreldrar grunnskólabarna verið beðnir um að halda börnum sínum heima. Ennfremur er því beint til skólastjórnenda að senda börn sem komin eru í skólana ekki heim nema í öruggri fylgd foreldra eða forráðamanna. Þá tóku fræðsluyfirvöld á Suðurnesjum þá ákvörðun að hvetja foreldra í Reykjanesbæ til að sækja börnin sín í skólann við fyrsta tækifæri. Foreldrar verða að koma inn í skólann og sækja barnið. Skólarnir munu sjá til þess að ekkert barn fari án fullorðins út í óveðrið. Sama á við Grindavíkurskóla og Stóru-Vogaskóla í Vogum. Í Gerðaskóla í Garði er nokkur fjöldi barna í skólanum og hafa skólayfirvöld þar rætt við foreldra barnanna um að sækja þau. Öllu skólahaldi var aflýst í Sandgerðisskóla í morgun og eru öll börnin sem voru komin í skólann komin til síns heima. Enn fremur er vonskuveður undir Eyjafjöllum og hvetur lögreglan á Hvolsvelli fólk til að vera þar ekki á ferðinni að nauðsynjalausu. Við Steina undir Eyjafjöllum eru veðurhæð 30 metrar í hviðum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Þá vill lögreglan á Akranesi ítreka að fólk hugi að lausum munum og vera ekki á ferli að nauðsynjalausu. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er ennþá mjög hvasst undir Hafnarfjalli og þar er ekkert ferðaveður.
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Fleiri fréttir Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Sjá meira