Líkir hegðun Jóns Helga við handrukkun 11. desember 2007 19:43 Feðgarnir Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson eiga veg og vanda að tímaritinu Ísafold.
Reynir Traustason, ábyrgðarmaður tímaritsins Ísafoldar, kallar Jón Helga Guðmundsson, aðaleiganda Kaupáss, ómerking sem hann hafi aldrei hitt í eigin persónu. „Aðferðir hans við að koma höggi á fjölmiðil eru í ætt við athæfi handrukkara sem skeyta hvorki um reglur né lög í samfélaginu. Í því ljósi fagna ég yfirlýsingu Blaðamannafélags Íslands gegn vinnubrögðum Kaupáss. Jón Helgi sýndi félaginu þá fyrirlitningu að svara ekki spurningum þess," segir Reynir í yfirlýsingu sem hann hefur sent frá sér vegna fréttar sem birtist á Vísi fyrr í dag. Þar kallar Jón Helgi tímaritið Ísafold Baugsmiðil og harmar ekki ef tímaritið leggst af. „Jón Helgi tók tímaritið Ísafold úr sölu sama dag og því hefti sem var með grein um mansal tengt Goldfinger birtist. Í þeirri grein var birt mynd af Gunnari Birgissyni bæjarstjóra í Kópavogi ásamt tveimur konum á Goldfinger. Jón Helgi er greinilega ekki maður sannleikans eins og sjá má af því að hann getur ekki viðurkennt að hafa tekið tímaritið úr sölu vegna félaga síns og velgjörðamanns í Kópavogi," segir Reynir. „Hið undarlega við yfirlýsingar kaupmannsins er að framkvæmdastjóri Kaupáss og undirmaður Jóns Helga, Eysteinn Helgason, hafði samband við Jón Trausta Reynisson, ritstjóra Ísafoldar, í gær og virtist vilja friðmælast vegna sölubannsins. Jón Helgi aftur á móti stígur nú fram með grímulaust ofbeldi sitt og niðurlægir undirmann sinn. Aumt yfirklór hans bendir til þess að hann verðskuldi að hafa tapað því mikla fé á verslunarrekstri sem raun ber vitni," segir Reynir ennfremur. Í niðurlagi yfirlýsingar sinnar segir Reynir að vegna ummæla Jóns Helga um að Ísafold sé Baugsmiðill sé rétt að taka fram að eigendur Baugs hafi aldrei reynt að hafa áhrif á ritstjórnarstefnu blaðisins eða einstök efnistök, þvert á það sem blasi við hjá Kaupásmönnum. Það sé rétt að almenningur sé upplýstur um framgöngu Jóns Helga Guðmundssonar.
Tengdar fréttir Grætur það ekki þótt fækki um einn Baugsmiðil Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri Kaupáss sem rekur meðal annars verslanirnar Nóatún, Krónuna og 11-11, segist ekki getað borið ábyrgð á því að ekki sé rekstrargrundvöllur fyrir tímaritið Ísafold eins og ritsjóri þess ýjaði að fyrir helgi. Hann gráti það þó ekki sérstaklega þó það fækki um einn Baugsmiðil í landinu. 11. desember 2007 16:58 Mest lesið Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Innlent Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina Innlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent „Hvað sagðiru, 42? Það er geðveikt!“ Innlent Hildur með pálmann í höndunum Innlent Fleiri fréttir Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Lokatölur í Garðabæ: Sjálfstæðismenn bæta við sig fulltrúa Lokatölur í Kópavogi: Ásdís með hreinan meirihluta Sjá meira
Grætur það ekki þótt fækki um einn Baugsmiðil Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri Kaupáss sem rekur meðal annars verslanirnar Nóatún, Krónuna og 11-11, segist ekki getað borið ábyrgð á því að ekki sé rekstrargrundvöllur fyrir tímaritið Ísafold eins og ritsjóri þess ýjaði að fyrir helgi. Hann gráti það þó ekki sérstaklega þó það fækki um einn Baugsmiðil í landinu. 11. desember 2007 16:58