Í farbanni fram yfir jól vegna gruns um nauðgun 10. desember 2007 17:04
Hæstiréttur staðfesti í dag farbannsúrskurð yfir Pólverja sem grunaður er um nauðgun í Vestmannaeyjum í lok september. Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði manninn í farbann til 30. janúar en Hæstiéttur stytti farbannsúrskurðinn til 18. janúar. Í greinargerð lögreglu með farbannskröfunni kemur fram að maðurinn hafi játað að hafa haft mök við konuna sem hann er sakaður um að hafa nauðgað. Hann segir hins vegar að mökin hafi átt sér stað með samþykki hennar. Þar kemur einnig fram að beðið sé niðurstöðu rannsókna á fatnaði konunnar en hann er til rannsóknar í Svíþjóð. Maðurinn mótmælti farbannsúrskurðinum og kvaðst ekki eiga að gjalda þess að rannsóknir á lífsýnum tækju langan tíma. Þá væru það réttindi hans að vera hjá fjölskyldu sinni um hátíðarnar. Hann væri auk þess slasaður og gæti þess vegna ekki stundað vinnu. Enn fremur hefði hann lagt fram tryggingu sem tryggja mætti að hann kæmi til landsins aftur ef þörf kræfi. Á þetta féllst hvorki héraðsdómur né Hæsiréttur og var vísað til þess að brottför mannsins gæti torveldað rannsókn málsins. Einn dómari, Jón Steinar Gunnlaugsson, skilaði sératkvæði og taldi ekki nauðsynlegt að bíða eftir niðurstöðu úr greiningu lífsýna til þess að taka ákvörðun um saksókn í málinu. Maðurinn hefði viðurkennt að hafa haft mök við konuna. Taldi hann nægilegt að maðurinn sætti farbanni til vikuloka á meðan yfirvöld tækju ákvörðun um hvort höfða ættti mál á hendur honum.
Mest lesið WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Innlent „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Innlent Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Erlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Erlent Kjartan er kominn heim til Íslands Innlent Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri Erlent Ný samræmd próf lögð fyrir Innlent Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Innlent Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Innlent Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Innlent Fleiri fréttir Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Ný samræmd próf lögð fyrir Framsókn þurfi að þora að svara rangfærslum og hálfsannleik popúlista „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Kjartan er kominn heim til Íslands Aldrei fleiri útskrifast frá Bifröst Gagnrýnir hversu seint og illa endurreisn Grindavíkur gengur Íslendingar stemmningsfólk sem taki öllum gleðidögum fagnandi Bein útsending: Sigurður Ingi ávarpar Framsóknarmenn í síðasta sinn sem formaður Segir einkaðila ekki hafa fengið svör í marga mánuði Ánægja með bæjarstjórann en Sjálfstæðismenn með mest fylgi Uppnám á bráðamóttökunni og seinagangur í Grindavík Fluttur á sjúkrahús eftir líkamsárás í Grafarvogi WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Herþotur frá Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi á Íslandi Tveir handteknir fyrir stórfellda líkamsárás og vörslu fíkniefna Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Algjör samstaða sé um að hækka bætur Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Vildi fá hestinn endurgreiddan þar sem hann var með aukatönn Viðræður við Klíníkina, barátta stórvelda og Breiðholt Got Talent Óðinn Svan leiðir L-listann Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Tveir veiðimenn fengu tvær milljónir frá Hval Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Kominn undan feldi og svarið er nei Sjá meira