Innlent

Þrír bílar útaf í hálku á Suðurlandi

Litla Kaffistofan.
Litla Kaffistofan.
Tveir bílar fóru út af í hálku á Biskupstungnabraut við gatnamótin á Suðurlandsvegi og annar fór út af á brautinni við Laugarbakka undir Ingólfsfjalli. Þá voru tvær aftanákeyrslur á Suðurlandsvegi, önnur við litlu Kaffistofuna og hin í Svínahrauni. Lögreglan á Selfossi segir að töluvert hafi verið um útafakstra í dag, og nokkuð um eignatjón en engin alvarleg slys á fólki. Enn eru einhverjir bílar ekki nægilega vel búnir, en samkvæmt upplýsingum lögreglu voru það þó ekki síður þeir sem voru á vetrardekkjum sem lentu í vandræðum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×