Innlent

Pókerheimurinn á Íslandi veltir hundruðum milljóna á ári

Íslendingar eyða miklum peningum í póker á hverju ári.
Íslendingar eyða miklum peningum í póker á hverju ári.

Gríðarlegar fjármunir velta á milli handanna á íslenskum pókerspilurum á ári hverju. Heimildamenn Vísis í pókerheiminum telja fullvíst að árleg velta hlaupi á hundruðum milljóna.

Áhugi á póker á Íslandi hefur vaxið mikið á undanförnum árum. Bæði hefur spilamennska á netinu aukist en einnig í reykfylltum bakherbergjum þar sem spilað er upp á milljónir og einungis fáir útvaldir komast að. Samkvæmt kvöldfréttum RÚV er hægt að spila póker á hverju kvöldi gegn greiðslu gjalds og hafa sigurvegarar úr slíkum mótum grætt allt að 70 þúsund krónur.

Eftir slík mót fara hins vegar fram svokallaðir "money game" en þar berjast menn um alvöru upphæðir sem geta hlaupið á hundruðum þúsunda og jafnvel milljónum.

Dæmi eru um að menn hafi grætt hátt í tíu milljónir á kvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×