Innlent

Braust inn í Ferstiklu í Hvalfirði

Úr Hvalfirði.
Úr Hvalfirði. MYND/Hari

Lögreglan í Borgarnesi handtók í nótt karlmann sem braust inn í veitingastaðinn að Ferstiklu í Hvalfirði upp úr miðnætti.

Nokkru síðar ók lögregla fram á bíl en í honum var kona í áfengisdái. Það leiddi til þess að eigandi bílsins fannst skömmu síðar og voru bæði flutt í Borgarnes til gistingar í fangageymslum og verða yfirheyrð þegar þau hafa heilsu til. Þá er þýfið að mestu komið í leitirnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×