Lögregla hefur ekki enn fundið manninn 16. nóvember 2007 19:38
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki enn fundið karlmann sem hún leitar að í tengslum við rannsókn á árás í miðborg Reykjavíkur. Lögreglan hefur birt mynd af manninum úr öryggismyndavél í miðbænum. Samkvæmt upplýsingum lögreglu nú fyrir stundu er maðurinn ekki fundinn en rannsókn miðar þó áfram. Nokkrir hafa haft samband við lögregluna og gefið henni vísbendingar í tengslum við málið. Vísir sagði frá því fyrr í dag að lögregla vilji ekki tilgreina hvers konar árás sé um að ræða en leiða má líkum að því að um sé að ræða nauðgun sem rúmlega tvítug kona kærði til lögreglunnar í gær. Fram kom í Fréttablaðinu í morgun að konan hefði verið á heimleið af skemmtistað aðfaranótt laugardagsins þegar maður réðst á hana í Grófinni í Reykjavík og nauðgaði henni. Hún mun hafa hlotið nokkra áverka við árásina. Konan gaf greinargóða lýsingu á árásarmanninum og hefur lögregla skoðað eftirlitsmyndavélar á svæðinu við rannsókn málsins. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að hún vilji með myndbirtingunni athuga hvort einhver þekki manninn en hann er talinn tengjast málinu. Maðurinn er 165 til 170 sentímetrar á hæð, grannur, dökkhærður, stuttklipptur með þunnt yfirvaraskegg og pinna í tungunni. Hann er talinn af erlendu bergi brotinn. Þeir sem geta gefið upplýsingar um manninn eru vinsamlega beðnir um að hringja í lögregluna í síma 444-1000.
Mest lesið Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Sjá meira