Innlent

GGE: Vonast til þess að gerðir verði nýir samningar

Breki Logason skrifar

Á eigendafundi Orkuveitu Reykjavíkur sem var að ljúka rétt í þessu var samþykkt borgarráðs frá því í morgun staðfest. Það hefur því formlega verið ákveðið að fallið verði frá samruna Geysi Green Energy og Reykjavík Energy Invest.

Í borgarráði í morgun var einnig samþykkt einróma að falla frá máli Svandísar Svavarsdóttur borgarfulltrúa Vinstri grænna. En eins og frægt er orðið kærði hún hluthafafund Orkuveitunnar þegar samrunninn var samþykktur á sínum tíma.

Í fréttum Rúv nú fyrir stundu kom fram að forsvarsmenn Geysis Green Energy vonist enn til að samningar muni standa eða þá að félagið fari í skaðabótamál við borgina.

Samkvæmt heimildum Vísis þá telja menn hjá GGE að enn sé von um að gerðir verði nýir samningar en útiloka þó ekki að farið verði í skaðabótamál. Menn vonast þó til þess að sátt náist í málinu svo ekki þurfi að fara dómstólaleiðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×