Innlent

Bílslys á Suðurlandsvegi: Maður á áttræðisaldri lést

Breki Logason skrifar

Á slaginu klukkan 18:00 í kvöld var jepplingi ekið í veg fyrir flutningabíl á Suðurlandsvegi til móts við Heiðmerkurafleggjara. Karlmaður á áttræðisaldri lést í slysinu.

Að sögn lögreglu ætlaði ökumaður jepplingins að taka U-beygju við gatnamótin og ók þannig í veg fyrir flutningabílinn með fyrrgreindum afleiðingum.

Veginum var lokað í rúma tvo tíma en lögreglan hefur opnað veginn aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×