Dregið verði úr fjölpósti 14. nóvember 2007 15:26 MYND/Rósa
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hyggst setja á fót starfshóp til þess að finna leiðir til þess að draga úr fjölpósti í landinu. Þetta kom fram í fyrispurnartíma á Alþingi. Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, spurði Þórunni um málið og benti á að árlega bærust nú 176 kíló af pappír inn á hvert heimili í landinu en þrír fjórðu þeirrar þyngdar eru dagblöð og fjórðungur fjölpóstur. Sagði hún umfang fjölpósts hafa aukist um 76 prósent frá árinu 2003. Það væri í raun ótrúlega mikið af fjölpósti sem gubbaðist inn um lúgurnar hjá fólki og það þyrfti svo að borga fyrir förgun hans í gegnum skattana. Spurði hún ráðherra hvenær von væri á aðgerðum til þess að auka ábyrgð þeirra sem dreifa fjölpósti á kostnaði við förgunina. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra sagði aukinguna á fjölpósti gríðarlega. Mikilvægt væri að auka ábyrgð þeirra sem framleiddu og flyttu inn blöð, tímarit og bækur og því hefði hún ákveðið að fela starfshópi að skoða hvort hægt væri að innleiða framleiðendaábyrgð eða setja á sérstakt úrvinnslugjald vegna þessa. Nefndin skilaði vonandi tillögum í vetur. Siv benti einnig á í ræðu sinni að Íslandspóstur væri hættur að bjóða upp á gula límmiða fyrir póstkassa þar sem fjölpóstur væri afþakkaður. Þórunn sagðist hafa spurst fyrir um málið og meðal annars fengið þau svör að ekki væri næg lagastoð fyrir því að prenta slíka miða. Furðaði hún sig á því að það þyrfti að vera sérstök löggjöf um að fólk gæti afþakkað póst.
Mest lesið Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Sjá meira