Innlent

Ríkið sýknað af kröfu Litháa vegna framsals

MYND/Valli

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag íslenska ríkið af kröfum Litháa um skaðabætur vegna þess að hann var handtekinn og framseldur til Þýskalands vorið 2005.

Forsaga málsins er sú að maðurinn kom með Norrænu til Seyðisfjarðar í mars 2005. Var hann þá handtekinn þar sem í ljós kom að hann var eftirlýstur í Þýskalandi vegn gruns um fíkniefnabrot þar í landi. Hann var í farbanni hér á landi fram í miðjan maí þegar hann var framseldur til Þýskalands.

Þar sat hann í gæsluvarðhaldi fram í febrúar árið 2006 þegar hann var sýknaður af ákæru um fíkniefnabrot. Ákvað hann í kjölfarið að sækja íslenska ríkið til saka vegna þeirra þvingungar aðgerða sem gripið hefði verið til hér á landi.

Héraðsdómur komst hins vegar að því að öll lögmæt skilyrði hefðu verið fyrir hendi til að maðurinn sætti handtöku, farbanni og framsali. Þá er bent á að í málatilbúnaði mannsins komi ekki fram hvernig hann hafi orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna aðgerða lögreglu. Bótaábyrgð sé ekki fyrir hendi samkvæmt almennu skaðabótareglunni nema sýnt sé fram á fjárhagslegt tjón sem rakið verði til ólögmætra aðgerða. Var íslenska ríkið því sýknað af kröfu mannsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×