Innlent

Meta tillögur um verklag við að mæla bremsuskilyrði

Sérfræðingar Alþjóða flugmálastofnunarinnar eru að meta tillögur rannsóknanefndar flugslysa á Íslandi, um verklag við að mæla bremsuskilyrði á flugbrautum.

Nefndin lagði tillögurnar fram eftir rannsókn á flugatviki á Reykjavíkurflugvelli árið 2003, sem svipar mjög til atviksins á Keflavíkurflugvelli aðfararnótt laugardags þegar farþegaþota JetX félagsins rann út af braut í hálku.

Flugritinn úr henni verður væntanlega sendur úr landi til rannsóknar í dag. Flugstjórinn heldur því fram að hann hafi fengið rangar upplýsingar um bremsuskilyrði á flugbrautinni áður en hann lenti, en flugvallarstarfsmenn mæla þau samkvæmt gildandi verklagi.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×