Innlent

Lögreglan stöðvar átök við Funahöfða

Tveir íslenskir karlmenn voru fluttir með sjúkrabílum á slysadeild Landsspítalans til aðhlynningar í nótt, eftir átök, sem urðu fyrir utan hús við Funahöfða í Reykjavík, þar sem margir erlendir verkamenn búa. Mennirnir höfðu verið barðir með kylfum.

Hópur lögreglumanna fór inn í húsið og handtók tvo útlendinga, sem grunaðir eru um verknaðinn og gista þeir fangageymslur. Tildrög átakanna eru enn óljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×