Innlent

Lögreglan rannsakar hópslagsmál

Gissur Sigurðsson skrifar

Lögreglan á Húsavík mun í dag halda áfram rannsókn á hópslagsmálum, sem brutust út á veitingastað í bænum í fyrrakvöld með aðild heimamanna og erlendra verkamanna. Einn kjálkabrotnaði, annar fótbrotnaði og var fluttur á sjukrahús á Akureyri, og þrír meiddust talsvert og þurftu að leita læknis. Tildrög eru enn óljós og býst lögregla við að kærur verði lagðar fram á báða bóga í dag.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×