Mikil fjölgun kennslukvenna í framhaldskólum 30. ágúst 2007 09:37 MYND/GVA
Konum við kennslu í framhaldsskólum hefur fjölgað um 40 prósent á aðeins sex ára tímabili samkvæmt tölum Hagstofunnar. Þar kemur fram að konur hafi verið rúm 52 prósent kennara á síðasta skólaári en þær voru tæp 46 prósent skólaárið 2000-2001. Körlum við kennslu í framhaldsskólum hefur hins vegar fjölgað um sjö prósent. Tölur Hagstofunnar leiða enn fremur í ljós að starfsmönnum við kennslu í framahaldskólunum hefur samanlagt fjölgað um rúm 20 prósent en það er í takt við fjölgun nemenda í skólunum. Haustið 2006 voru nærri 1900 kennarar í framhaldsskólunum en alls voru starfsmenn skólanna tæplega 2500. Framhaldsskólar utan höfuðborgarsvæðisins hafa löngum haft hlutfallslega færri réttindakennara innan sinna vébanda en skólar á höfuðborgarsvæðinu. Í nóvember 2006 var staðan hins vegar orðin sú að hlutfallslega fleiri réttindakennarar störfuðu í skólum á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Með réttindakennara er átt við þann starfsmann við kennslu sem hefur leyfisbréf frá menntamálaráðuneytinu til að kalla sig framhaldsskólakennara. Alls höfðu um 76 prósent starfsmanna við kennslu í nóvember 2006 kennsluréttindi. Í nóvember 2005 var hlutfall réttindakennara hins vegar 78,7 prósent. Hlutfall réttindakennara á landinu öllu hefur því lækkað sem nemur 2,6 prósentustigum á milli þessara ára. Í gögnum Hagstofunnar um starfsmenn í framhaldsskólum má sjá að undanfarin ár hefur starfsmönnunum í hlutastarfi fjölgað meira en starfsmönnum í fullu starfi. Starfsmönnum við kennslu sem starfa í minna en hálfu stöðugildi hefur þannig fjölgað um nærri þriðjung en á sama tíma hefur starfsmönnum sem eru í einu til einu og hálfu stöðugildi aðeins fjölgað um átta prósent. Hagstofan segir að þetta skýri að einhverju leyti að réttindakennurum fækki hlutfallslega á milli síðustu ára þar sem mun fleiri starfsmenn séu réttindalausir í hópi starfsfólks í hlutastarfi en hinna sem eru í fullu starfi.
Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Erlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku Innlent Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Innlent Fleiri fréttir Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Forstöðumaður spilar og syngur fyrir gesti Sundlaugar Akureyrar Sögulegur dagur á Alþingi og vændi í Airbnb-íbúðum Árekstur bíls og vespu á Hafnarfjarðarvegi Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Varðskipið Þór heldur heim frá Noregi í næstu viku Frumvarpið komið yfir erfiðasta hjallann en gæti átt nóg eftir Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sjá meira