Innlent

Bíll í sjóinn í Hafnarfjarðarhöfn

MYND/Stefán

Kafarar frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins voru kallaðir að Hafnarfjarðarhöfn rétt eftir klukkan tíu í kvöld en mannlaus bíll hafði farið í sjóinn. Bíllinn hafði runnið niður sjósetningar ramp við Fornubúðir og farið á kaf. Að sögn vaktstjóra hjá slökkviliðinu gekk vel að ná bílnum á þurrt land en verkinu lauk nú fyrir skömmu síðan.

Ekki er vitað um tildrög þess að bíllinn rann í sjóinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×