Innlent

Harður þriggja bíla árekstur á Dalvegi í Kópavogi

Einn bíllinn er mikið skemmdur eftir áreksturinn
Einn bíllinn er mikið skemmdur eftir áreksturinn Mynd/ Stöð 2

Harður þriggja bíla árekstur varð á Dalvegi um klukkan hálfníu í morgun. Slökkviliðið þurfti að beita klippum til að ná konu út úr einum bílnum og var hún flutt á slysadeild. Að sögn læknis voru meiðsl hennar minniháttar. Engar upplýsingar hafa fengist um tildrög slyssins. Loka þufti nálægum götum og mynduðust miklar umferðartafir, að sögn lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×