Innlent

Hústökufólk í Garðabæ

Allt var á tjá og tundri þegar íbúar komu heim.
Allt var á tjá og tundri þegar íbúar komu heim.

Fíkniefnaneytendur hafa einhverja síðustu daga brotist inn í einbýlishús í Garðabæ, þar sem þeir gerðu sig heimakomna, en heimilisfólk var í útlöndum. Þegar það kom heim í gærkvöldi blasti við þeim ófögur sjón. Búið var að rútta til húsgögnum, sofa í rúmum, sígarettustubbar og tól til fíkniefnaneyslu lágu út um allt, sömuleiðis matarleifar, og búið var að stela ýmsum verðmætum eins og til dæmis flatskjá og hljómflutningstækjum. Hústökufólkið var hinsvegar á bak og burt og virðast nágrannar ekki hafa orðið varir við neinar mannaferðir við húsið.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×