Endurbótum á Grímseyjarferju ljúki í nóvemberlok 24. ágúst 2007 13:40 MYND/Stöð 2
Búist er við því að endurbótum á Grímseyjarferjunni verði lokið í lok nóvember en endanlegur kostnaður við kaup og endurbætur liggur ekki fyrir. 380 milljónum króna hefur þegar verið varið til verksins. Ríkisendurskoðun birti í síðustu viku svarta skýrslu um Grímseyjarferjumálið þar sem fram kom að áætlaður kostnaður við kaup og endurnýjun á ferju hefði upphaflega verið 150 milljónir. Nú er hins vegar ljóst að það kostnaðurinn fer yfir 400 milljónir. Eftir að skýrsla Ríkisendurskoðunar var gerð opinber ákvað Kristján L. Möller samgönguráðherra að fela Vegagerðinni að mynda strax sérstakan verkefnahóp sem á að fara yfir stöðu málsins og gæta hagsmuna ríkissjóðs. Þá óskaði hann eftir við Vegagerðina að nákvæmri verk- og kostnaðaráætlun yrði skilað fyrir lok síðustu viku. Að sögn Gunnars Gunnarssonar aðstoðarvegamálastjóra liggur verkáætlun nú fyrir en samkvæmt henni á Grímseyjarferjan að vera klár fyrir lok nóvember. Það verði í höndum eftirlitsaðila Vegagerðarinnar að fylgjast með að áætluninni sé fylgt eftir. Aðspurður um kostnaðaráætlunina segir Gunnar að 380 milljónir króna hafi þegar farið í verkið en um 30 milljónir séu eftir af samningsverkum. Þá sé ósamið um ýmis aukaverk og því liggi endanlegur kostnaður við ferjuna ekki fyrir. Verkefnahópur sem skipaður var vegna málsins fundaði á miðvikudag og kemur til með að funda reglulega vegna málsins að sögn Gunnars. Hópurinn eigi að sjá til þess að verkinu ljúki og því verði fundað reglulega þar til það verður yfirstaðið. Eiríkur Ormur Víglundsson, forstjóri Vélsmiðju Orms og Víglundar sem séð hefur um endurbætur á ferjunni, segir vinnu við Grímseyjarferjuna nú í fullum gangi og staðfestir að áætlað sé að ljúka endurbótum á ferjunni í lok nóvember. Ferjan er nú á floti í Hafnarfjarðarhöfn og segir Eiríkur og vinnu á ytra byrði hennar að mestu lokið en eftir eigi að ganga frá innréttingum.
Mest lesið Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Innlent Gunnar lögmaður: „Ég er rosalega vinsæll á meðal Albananna“ Innlent Eldri kona stórslösuð og vitni gefa sig fram Innlent Alvarlegt slys á Suðurlandsbraut Innlent Lífið gjörbreytt Innlent Elsti Íslendingurinn er látinn Innlent Sextán ára martröð strætóbílstjóra í Reykjanesbæ Innlent Fólk farið að reykja kókaínið Innlent „Þetta er stórkostlegt vandamál fyrir Íslendinga“ Innlent Ráðherra bað skólameistara afsökunar sem klóra sér enn í kollinum Innlent Fleiri fréttir Langþráð verk í vegagerð bíða fram á næsta áratug Farþeginn enn í haldi lögreglu Sextán ára martröð strætóbílstjóra í Reykjanesbæ Slökkvilið kallað út vegna ammoníakleka Ummæli Þórunnar dapurleg Margt sem gildir enn í samstarfi Íslands og Bandaríkjanna Fólk farið að reykja kókaínið Kókaínreykingar algengari, vonbrigði í vegagerð og háskaleg eftirför lögreglu Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Taldi brúðkaup í Keníu ekki telja og krefst ógildingar Slökktu eld á Stórhöfða Ráðherra bað skólameistara afsökunar sem klóra sér enn í kollinum Elsti Íslendingurinn er látinn Eldri kona stórslösuð og vitni gefa sig fram Halla Bergþóra sækir um en ekki Páley Hafnarfjörður mátti ekki afturkalla ráðningu Óskars Steins Gunnar lögmaður: „Ég er rosalega vinsæll á meðal Albananna“ Furðar sig á uppbyggingu við inngang þjóðgarðsins Grindvíkingar fái að velja hvar þeir kjósa „Auðvitað er forgangsröðun jarðganga vonbrigði fyrir mig“ „Þetta er stórkostlegt vandamál fyrir Íslendinga“ Ekki búið að bera kennsl á þann sem ekið var á Uggur í læknum og samtöl við Norðurlönd nauðsynlegt Fóru ekki fram á lengra varðhald yfir lögmanninum Áhyggjufullir læknar Hlaup hafið í Skaftá Alvarlegt slys á Suðurlandsbraut Lífið gjörbreytt Grindvíkingar hugsa um að fara heim: Gott að vera í Grindavík en verður aldrei eins Króuðu stolinn bíl af í Kömbunum eftir eftirför þvert yfir Hellisheiði Sjá meira