Segir stöðu Vegagerðarinnar jákvæða um 630 milljónir 23. ágúst 2007 14:40 MYND/Stöð 3
Staða Vegagerðarinnar gagnvart ríkisstjóði er jákvæð um 630 milljónir króna. Þetta segir Vegagerðin í tilkynningu sem send er vegna umræðu um Grímseyjarferjumálið og ásakana þess efnis að Vegagerðin hafi farið fram úr fjárheimildum sínum. Ríkisendurskoðun benti á það fyrr í vikunni að í skýrslu um fjárreiður ríkisins kæmi fram að rekstrarútgjöld Vegagerðarinnar hefðu farið rúmlega 500 milljónir króna fram úr fjárheimildum í árslok 2006 og þar af væru 300 milljónir vegna kaupa og breytinga á hinni nýju Grímseyjarferju.Bent er á í tilkynningu Vegagerðarinnar að stofnunin sé rekin á tveimur númerum, 10-211 og 10-212, í bókhaldi ríksins. Fyrri liðurinn snúi að mestu að rekstri og þjónustu og á þann lið falli allur rekstur ferjanna og stofnkostnaður þeirra. Á lið 10-212 falli hins vegar stofnkostnaður og viðhald, þar á meðal nýir vegir, jarðgöng og endurnýjun bundinna slitlaga.„Sé einungis horft á lið 10-211 er halli á honum sem nemur rúmum 550 milljónum króna en hinsvegar er liður 10-212 jákvæður sem nemur tæplega 1.180 milljónum króna, þannig að í heild er Vegagerðin í plús sem nemur tæpum 630 milljónum króna," segir í tilkynningu Vegagerðarinnar.Vegagerðin segir að halli á lið 10-211 sé fyrst og fremst vegna ferja og þar af eru um 300 milljónir króna vegna Grímseyjarferju. Þar sé verið nota aðrar ónýttar fjárheimildir samkvæmt samkomulagi samgönguráðueytis, fjármálaráðuneytis og Vegagerðarinnar. Þá sé einnig halli vegna þess að ferðum ferja hafi verið fjölgað án þess að fjárveitingar hafi verið auknar til þess liðar.Vegagerðin tekur fram að þótt hún nýti ónýttar fjárheimildir til að greiða fyrir Grímseyjarferju hafi það ekki leitt til neinna tafa á öðrum framkvæmdum í vegagerð né hafi verið hætt við fyrir fram ákveðnar framkvæmdir.
Mest lesið „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Innlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Innlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir „Varð að martröð“ Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Sjá meira