Styttist í stóru stundina í Meistaradeildinni 23. maí 2007 16:15
AC Milan og Liverpool mætast í kvöld í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í annað sinn á tveimur árum. Arnar Björnsson íþróttafréttamaður lýsir leiknum beint frá Aþenu klukkan 18:45 í kvöld en upphitun fyrir leikinn hefst á Sýn klukkan 18:00. Það ríkir mikil eftirvænting hjá stuðningsmönnum liðanna enda er leikurinn í kvöld enginn venjulegur fótboltaleikur. Tvö stórveldi í evrópskri knattspyrnu mætast, AC Milan spilar til úrslita í ellefta sinn en Liverpool það sjöunda. AC Milan hefur sex sinnum orðið Evrópumeistari en takist Liverpool-mönnum að vinna í kvöld jafna þeir þann árangur. Mönnum er enn fersku minni dramatískur leikur liðanna fyrir tveimur árum þegar Liverpool-menn gengu til búningsherbergja í leikhléi 3-0 undir, skoruðu svo þrjú mörk á sex mínútna kafla í síðari hálfleik og tryggðu sér svo sigurinn í vítaspyrnukeppni. Þegar leikmenn AC Milan rifja þennan leik upp gnísta þeir tönnum. Þeir ætla sér að koma fram hefndum. AC Milan liðið er gríðarlega vel mannað með Brasilíumanninn Kaka í aðahlutverki. Ætli Liverpool-menn sér sigur verða þeir að koma í veg fyrir að Kaka, sem líklega er besti knattspyrnumaður heims, endurtaki snilldartilfþrif sín frá undanúrslitaleikjunum við Manchester United. Í röðum Milan eru einnig Gattuso go Pirlo. Nái þeir undirtökunum á miðjunni þurfa Liverpool-menn að vara sig. Liverpool hefur á að skipa afbragðssnjöllum knattspyrnustjóra sem hingað til í hefur átt svör við öllum klókindum mótherjanna. Rafa Benitez, stjóri Liverpool, þarf að brýna sinn besta mann, fyrirliðann Steven Gerrard. Ef hann spilar vel er Liverpool illviðráðanlegt. Stuðningsmenn Liverpool voru fjölmennir í miðborg Aþenu í gær og máluðu bæinn rauðan, en margir þeirra eru ekki með miða á leikinn. Aðeins 63.800 áhorfendur verða á vellinum og ljóst er að stuðningsmenn Liverpool verða fleiri. Átta þúsund lögreglumenn gæta þess svo að allt fari vel fram.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Fleiri fréttir Saka borgina um að víkja sér undan ábyrgð Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Sjá meira