Ársreikningur borgarinnar óviðunandi 15. maí 2007 15:46 MYND/Vilhelm
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri segir ársreikning borgarinnar fyrir árið 2006 óviðunandi en halli af rekstri borgarinnar nam 4,3 milljörðum í fyrra. Í ræðu sinni í fyrri umræðu um ársreikninginn í borgarstjórn skellti Vilhjálmur skuldinni á R-listann og sagði það sérstakt rannsóknarefni hvernig honum hefði tekist í einu mesta góðæri Íslandssögunnar að hækka skatta og skuldir, reka Aðalsjóð Reykjavíkurborgar með halla og fæla fólk yfir í önnur sveitarfélög. Stjórnarskipti urðu í borginni í fyrra þegar sjálfstæðismenn og framsóknarmenn tóku við af R-listanum og sagði Vilhjálmur árið því að nokkru leyti munaðarlaust í reikningum borgarinnar. Hins vegar bæri R-listinn ekki aðeins ábyrgð á rekstri borgarinnar fram að stjórnarskiptum heldur einnig fjárhagsáætlun ársins. Vísaði Vilhjálmur í endurskoðunarskýrslu frá Grant Thornton sem fylgdi ársreikningnum. Þar hefði komið fram að halli á A-hluta borgarinnar hefði verið viðvarandi frá árinu 2002 og að slík niðurstaða gæti engan veginn talist ásættanleg þegar litið væri til hagstæðs efnahagsástands og í ljósi þess að A-hlutinn hefði notið verulegra arðgreiðslna frá fyrirtækjum borgarinnar öll þessi ár. Þá benti samanburður á afkomu Reykjavíkurborgar og annarra stærri sveitarfélaga til að rekstrarárangur borgarinnar væri langt undir því sem almennt gerðist hjá þeim sveitarfélögum. Brýnt væri að leita skýringa á þessu. Sagði Vilhjálmur þetta áfellisdóm yfir störfum R-listans sem þó kæmi honum ekki á óvart þar sem hann hefði margsinnis bent á veikburða fjármálastjórn R-listans. Sagði hann nýjan meirihluta þegar hafa brugðist við og unnið væri að úrbótum. Mikið verk væri fram undan sem ynnist ekki á einni nóttu en hann vonaði að borgarfulltrúar gætu sameinast um það markmið að bæta rekstur Reykjavíkurborgar.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Innlent Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira