Geir og Guðni væntanlega verið teknir til bæna 23. apríl 2007 17:42 Valgerður Sverrisdóttir í pontu á Akureyri í dag MYND/N4/Þorvaldur
Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, gerði karlrembu og viðhorf til kvenna í pólitík að umræðuefni sínu í óvenju beinskeyttri ræðu við Háskólann á Akureyri í dag. Hún nafngreindi meðal annars nokkra karlkyns stjórnmálamenn sem að hennar mati hafa sýnt kollegum sínum af gagnstæða kyninu óvirðingu. „Ég vil efast um að það sé meðvitað, en í viðureignum á hinu pólitíska sviði gerast karlmenn oft sekir um særandi ummæli í garð kvenna sem jaðra við kvenfyrirlitningu," sagði Valgerður í ræðunni. „Þannig er mér í fersku minni þegar Sighvatur Björgvinsson lét þau orð falla um Ingibjörgu Pálmadóttur, sem tók við af honum í embætti heilbrigðisráðherra, að hún væri barnaleg og reynslulaus. Hefði hann sagt þetta við karlmann í embætti ráðherra? Ég leyfi mér að efast um það. Össur Skarphéðinsson kallaði mig papparáðherra á fyrstu vikum mínum í embætti. Hefði hann haft þvílík ummæli uppi um karlmann? Næsta örugglega ekki. Einnig voru ýmsir sem höfðu uppi háðuleg orð um enskukunnáttu mína þegar ég steig mín fyrstu skref sem utanríkisráðherra. Voru slík orð höfð uppi um t.d. Davíð Oddsson á sínum tíma? Mig rekur ekki minni til þess. Góðir félagar mínir Guðni Ágústsson og Geir H. Haarde hafa látið falla miður heppileg orð um konur, og ég þykist reyndar vita að eiginkonur þeirra hafi tekið þá til bæna fyrir vikið!" „Ég þori að fullyrða að konur sem sækjast eftir ábyrgðarstöðum reka sig á mun meira mótlæti en karlar," sagði ráðherrann. „Konur eru einfaldlega settar undir aðra mælistiku en karlar og verða oft fyrir meiri og óvægnari gagnrýni. Árangur minn og framganga í embætti utanríkisráðherra er t.d. veginn og metinn út frá öðrum forsendum en hvað fyrirvera mína varðar," sagði Valgerður einnig.
Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira