Lækkun matvælaverðs skilar sér ekki að fullu til neytenda 16. apríl 2007 13:58 MYND/Valgarður
Lækkun á virðisaukaskatti og vörugjöldum á matvælum hefur ekki skilað sér að fullu til neytenda samkvæmt úttekt verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands. Verslanir 10-11 standa sig áberandi verst. Mest lækkuðu hvers konar gosdrykkir í verði í þeim fimm verslunum sem úttektin náði til. Verðmælingar fóru fram í verslunum Hagkaupa, Nóatúns, Kjarval og klukkubúðunum 10-11 og 11-11 frá desember til loka marsmánaðar. Mest lækkaði verð eftir skattalækkanir í verslun 11-11 um 8,5 prósent en minnst í 10-11 um 4,4 prósent. Mánuðina fyrir lækkun virðisaukaskatts og vörugjalda hækkaði verð mest í verslun 10-11 eða um 4,3 prósent. Því hefur vöruverð í í verslunum 10-11 aðeins lækkað að meðaltali um 0,1 prósent frá því í desember á síðasta ári. Í verslunum Hagkaupa lækkaði verð um 7,7 prósent eftir skattalækkanir en hækkaði um 1,6 frá desember til loka febrúarmánuðar. Í verslunum Kjarval lækkaði verð um 6,3 prósent eftir lækkun virðisaukaskatts og vörugjalda en þar á undan hafði það hækkað um 2,7 prósent. Í verslunum Nóatúns lækkaði verð um 5,9 prósent eftir skattalækkanir en hafði hækkað um 1,3 mánuðina þar á undan. Af einstökum vöruflokkum lækka gosdrykkir, safar og kolsýrt vatn mest í öllum verslunarkeðjunum. Þá lækkar verð á sykri, sætindum og súkkulaði auk vörflokksins kaffi, te og kakó næstmest. Fram kemur í úttekt Alþýðusambandsins að í upphafi árs hafi Hagstofa Íslands áætlað að lækkun á virðisaukaskatti myndi lækka verð á mat og drykkjarvörum um 7,4 prósent og niðurfelling á vörugjöldum um 1,3 prósent til viðbótar. Alls 8,7 prósent. Samkvæmt úttektinni hefur vöruverð í verslunarkeðjunum fimm hins vegar aðeins lækkað um 6,56 prósent að meðaltali sem er rúmum tveimur prósentustigum minna en áætlanir Hagstofunnar gerðu ráð fyrir. Tekið er sérstaklega fram að ekki er um verðsamanburð á milli verslanakeðja að ræða heldur einungis lagt mat á verðbreytingar innan hverrar keðju fyrir sig. Sjá könnun ASÍ hér
Mest lesið Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Deilt um verðhækkanir Veitna Innlent Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Innlent Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Erlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Hljóp á sig Innlent Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Innlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira