Tónleikar á Ísafirði líklega ekki fyrr en á næsta starfsári Sinfó 14. apríl 2007 14:19 Vladimir Ashkenazy stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands. MYND/Pjetur
Tónleikar sem Sinfóníuhljómsveit Íslands hugðist halda á Ísafirði í gær undir stjórn Vladimirs Ashkenazys verða að líkindum ekki fyrr en á næsta starfsári sveitarinnar. Eins og greint var frá í fréttum í gær þurfti að aflýsa tónleikunum þar sem hvorki var hægt að lenda á Ísafjarðarflugvelli né Þingeyrarflugvelli vegna veðurs. Að sögn Sváfnis Sigurðarsonar, upplýsingafulltrúa Sinfóníuhljómsveitarinnar, var reynt til þrautar að lenda flugvélunum og sveimuðu þær í nokkurn tíma yfir flugvöllunum. Veðurguðirnir hafi hins vegar haft betur. Reynt verði að koma tónleikunum inn á dagskrá næsta starfsárs en Vladimir Ashkenazy kemur einu sinni á ári og stjórnar tónleikum Sinfóníunnar. Sváfnir segir að mikil eftirvænting hafi verið vegna tónleikanna vestra bæði hjá heimamönnum og tónlistarfólkinu. Undir það taka aðstandendur Tónlistarskóla Ísafjarðar og segir á heimasíðu skólans að það hafi verið gífurleg vonbrigði að tónlistarfólkið hafi ekki komist vestur. Mikill undirbúningur hafði verið fyrir tónleikana og var búið að koma hljóðfærunum fyrir á tónleikastaðnum. Þá hafi sérstakur flygilflutningamaður stjórnað sjö manna hópi sem flutti nýjan Steinway-flygil Tónlistarfélagsins upp á Torfnes þar sem halda átti tónleikana. Vladimir Ashkenazy hélt af landi brott í morgun en hann er væntanlegur aftur hingað til lands á næsta starfsári Sinfóníunnar til að stjórna tónleikum eins og fyrr segir.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Sjá meira