Tengivagn dreginn í bæinn til rannsóknar Björn Gíslason skrifar 11. apríl 2007 15:56 Tengivagninn rann hátt í hundrað metra áður en han valt á hliðina.
Enn er allt á huldu um það hvers vegna tengivagn slitnaði aftan úr flutningabifreið á vegum Landflutninga - Samskipa til móts við Steinabæi undir Eyjafjöllum í morgun. Eins og greint var frá fyrr í dag þótti það lán í óláni að tengivagninn skyldi fara yfir á öfugan vegarhelming og út á tún þar sem hann valt í stað þess að fara út af veginum hægra megin því þá hefði hann líklega endað á íbúðarhúsi og fjósi á Steinum. Bergvin Þórðarson, öryggisstjóri Landflutninga - Samskipa, fór austur fyrir fjall í morgun að skoða aðstæður og í samtali við fréttastofu nú eftir hádegið sagði hann að ekki lægi fyrir hvers vegna vagninn hefði slitnaði frá bílnum. Hann sagði að beðið yrði eftir því að vind lægði á svæðinu svo hægt væri að rétta tengivagninn við og draga hann í bæinn þar sem hann verður rannsakaður frekar. Bergvin sagðist telja að timbur og bárujárn sem voru í vagninum væru lítið skemmd eftir veltuna. Lögregla á Hvolsvelli á eftir að ræða við bílstjóra flutningabílsins en hann ók austur á firði með þann farm sem var í bílnum eftir óhappið.
Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Fleiri fréttir Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Sjá meira