Vinstri grænir vilja útrýma fátækt 10. apríl 2007 18:53
Vinstri hreyfingin grænt framboð segir raunhæft að bæta kjör hinna verst settu og útrýma fátækt án þess að hækka skatta. Þeir hafa lagt fram tillögur sem kosta myndu ríkissjóð tólf milljarða króna. Vinstri grænir opnuðu kosningaskrifstofu í dag í Kópavogi og efndu í leiðinni til fréttamannafundar undir yfirskriftinni : Bætum kjörin - burt með fátækt. Þar var lögð áhersla á að misrétti hafi aukist í íslensku samfélagi á undanförnum árum og lögð fram aðgerðaráætlun í mörgum liðum í þá veru að bæta hag hinna verst settu, svo sem að fella niður komugjöld á heilsugæslustöðvar, að öll börn og unglingar fái ókeypis tannvernd og almennar viðgerðir til tvítugs og aldraðir og öryrkjar fá slíkt sem hluta af heilbrigðisþjónustunni. Þá vilja Vinstri grænir samræma húsaleigu- og vaxtabætur undir skattkerfinu. Þá verði þröskuldum vegna búsetu rutt burt, til dæmis með því að tryggja landsbyggðinni gott aðgengi að almennri heilbrigðisþjónustu, nemendur geti stundað nám í heimahéraði til 18 ára aldurs. Einnig að grunnlífeyrir verði hækkaður og aldraðir hafi frítekjumark upp að 900 þúsund krónum á ári og engin börn á Íslandi búi við fátækt. Sem og að þjónusta við innflytjendur verði bætt verulega. Þetta er aðeins brot af því sem lagt er til, en fullyrt að hægt verði að ná þessum fram án skattahækkana. Ögmundur Jónasson leiðtogi flokksins í Suðvesturkjördæmi segir tekjuafgang af ríkissjóði sýna að nægt fé sé til. Hann segir þær hugmyndir sem kynntar voru í dag, kosta um 12 milljarða króna.
Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Innlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Innlent Stungan leiddi til skurðar Innlent Fleiri fréttir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Sjá meira