Ánægður með athygli Páls Óskars 7. apríl 2007 19:10
Jógvan Hanson kom sá og sigraði með yfirburðum í lokaumferð X-Factors í gærkvöldi. Hann bar sigurorð af Hara-systrum frá Hveragerði, þrátt fyrir að þær hafi að margra mati átt atriði kvöldsins. Jógvan er þar með fyrsti sigurvegari Íslands í X-Factor en hann sigraði með ríflega 70 prósent atkvæða. Hara systur gerðu hvað þær gátu en að margra mati áttu þær atriði kvöldsins þegar þær tóku Júróvisjon lag Ruslönu með miklum glæsibrag. En það var hjartaknúsarinn Jógvan sem íslenska þjóðin kaus. Jógvan er færeyskur og var keppnin send beint út þar. Fjölmiðlar í Færeyjum hafa sýnt keppninni mikinn áhuga og er talað um að nú sé Jógvan æði í Færeyjum líkt því þegar talað var um Magna æði hér heima á síðasta ári. Áhorfendur hafa tekið eftir því að Páll Óskar Hjálmtýsson, einn dómaranna í keppnina hefur oft sinnis látið ástúðleg orð falla í garð Jógvans. Þegar Jógvan hafði flutt Lionel Ritchie slagarann, Hello, söng Páll Óskar til hans. Jógvan er bara nokkuð ánægður með athyglina sem Páll Óskar sýndi honum og segir það bara vera gott mál þegar karlar jafnt sem konur heillast af honum. Og fyrir þá sem eru að velta því fyrir sér þá var ekki úr vegi að spyrja hvort kappinn væri á lausu. Jú, það er hann en hann er ekki að leita sér að lífsförunaut að svo stöddu. Nú hefst vinna að nýrri plötu Jógvans. Þegar er hægt nálgast lagið ,,Hvern einasta dag" inni á tónlist.is en það var sérstaklega samið fyrir keppnina. Lagið er eftir Óskar Pál Sveinsson og texti eftir Stefán Hilmarsson. Þrátt fyrir íslenska textann þá átti Jegvan ekki í erfiðleikum með lagið
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Framlengir vopnahléið og herkvína Erlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira