Innlent

Baldur flytur meira yfir Breiðafjörð

Flutningar sjóleiðina yfir Breiðafjörð hafa stóraukist eftir að nýja ferjan Baldur tók við af eldri ferju með sama nafni, fyrir tæpu ári. Í Skessuhorni er greint frá því að farþegum hafi fjölgað um 35 prósent, fólksbílum um rösk 56 prósent og vöruflutningabílum um rösk 58 prósent. Talsmaður Sæferða, sem rekur ferjuna, segir að þessi aukning sá talsvert umfram þær væntingar sem gerðar voru til aukningar þegar nýja ferjan kom til landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×