Innlent

Losa þarf byggðir landsins við drápsklyfjar kvótakerfisins

MYND/GVA

Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins, sagði á eldhúsdegi á Alþingi í kvöld að losa þyrfti byggðir landsins við drápsklyfjar kvótakerfisins og færa þeim aftur atvinnufrelsi og nýtingarrétt sem af þeim hefði verið tekinn. Þá sagði hann frjálslynda vilja hækka atvinnuleysisbætur upp í 150 þúsund krónur og leyfa bótaþegum að vinna án þess að skerða tekjur þeirra.

Magnús gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir svik í sjávarútvegsmálum og fyrir að styrkja ekki stöðu sjávarbyggða eins og kveðið væri á um í stjórnarsáttmálanum. Þá sagði hann að þegar fjörgur ár væru liðin og nokkrir dagar eftir af þingi væri svo komið fram með illa undribúið ákvæði inni í stjórnarskrá um auðlindamál og að hann gæti best trúað því að það væri sett fram í gamni.

Sagði hann uppbyggingu þorskstofnsins algörlega hafa mistekist og byggðunum blæddi af þeim sökum. „Við viljum losa byggðirnar við drápsklyfjar kvótakerfisins og færa þeim aftur atvinnufrelsi og nýtingarréttinn sem af þeim hefur verið tekinn," sagði Magnús.

Þá benti hann á að Frjálsyndi flokkurinn hefði einn flokka tekið upp hreinskipta umræðu um málefni innflytjenda. Málefni þeirra væru í ólestri og brotið væri á réttindum fólks. Sagði hann að Ísland upplifði það nú í fyrsta sinn að mikill fjöldi erlends fólks keppti við Íslendinga um störf og að afleiðingarnar væru þær að hópar launafólks væru að dragast aftur úr í kjörum.

Íslendingar væru fámenn þjóð og viðkvæmir fyrir hömlulausum aðflutningum eins og þeir hefðu upplifað á undanförnum misserum og gerðu áfram ef ekkert yrði að gert. Frjálslyndi flokkurinn vildi takmarka frjálst flæði verkafólks frá nýjum ríkjum ESB og ef hann kæmist í ríkisstjórn yrði látið á það reyna í gegnum EES-samninginn. Yfirvöld yrðu að stjórna því hve margir innflytjendur kæmu til landsins.

Magnús sagði ríkisstjórnina hafa stundað linnulaust auðmannadekur og nú væri komið að alþýðu landsins. Frjálslyndir vildu koma fólki úr fátækragildrum. Hækka ætti skattleisysismörk í 150 þúsund krónur og leyfa bótaþegum að afla tekna án skerðingar bóta. Þá vildi Frjálslyndi flokkurinn afnema verðtryggingu til hagsbóta fyrir almenning og beita sér því að bæta haga aldraðra og öryrkja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×