Hinn íslensk-ættaði Tomasson skoraði tvö mörk fyrir Dani í gærNordicPhotos/GettyImages
Danir lögðu Ástrala að velli 3-1 í vináttuleik á Loftus Road á Englandi í gærkvöldi þar sem segja má að frammistaða Dana fyrir framan mark andstæðinganna hafi ráðið úrslitum í annars jöfnum leik. Jon Dahl Tomasson skoraði tvö marka Dana og Daniel Jensen eitt, en Brett Emerton minnkaði muninn fyrir Ástrali með marki beint úr aukaspyrnu undir lokin.