Fótbolti

Zlatan gefur kost á sér í landsliðið á ný

NordicPhotos/GettyImages

Framherjinn sterki Zlatan Ibrahimovic hefur á ný gefið kost á sér í sænska landsliðið í knattspyrnu, en hann hefur verið úti í kuldanum síðan á síðasta ári þegar hann braut útivistarreglur liðsins og fór í fýlu við landsliðsþjálfarann Lars Lagerback.

Zlatan hefur nú náð sáttum við landsliðsþjálfarann á ný og staðfesti í samtali við Aftonbladet í dag að hann yrði inni í myndinni fyrir næstu leiki Svía. Liðið mætir Egyptum í vináttuleik í Kaíró þann 7. næsta mánaðar og verður Zlatan þá klár í slaginn af því gefnu að hann fái leyfi frá liði Inter til að taka þátt í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×