Innlent

Spurt hvort Samfylkingin og Vinstri - græn styddu stefnu frjálslyndra

MYND/Stefán

Kallað var eftir því á Alþingi í dag hvort Samfylkingin og Vinstri - græn styddu hugmyndir Frjálslynda flokksins í innflytjendamálum sem greint hefði verið frá á landsfundi flokksins um helgina.

Það var Guðjón Ólafur Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sem kvaddi sér hljóðs um störf þingsins og sagði landsfund frjálslyndra hafa einkennst af ringulreið þar sem fólk sem ekki væri í flokknum hefði fengið að kjósa forystu hans. Sagði hann þingið skrumskælingu á lýðræðinu og spurði hvernig flokki sem réði ekki við einn kjörkassa væri treystandi fyrir ríkiskassanum og þar með setu í ríkisstjórn.

Sagði Guðjón að honum hugnaðist illa stefna frjálslynda sem jaðraði við rasistadekur. Benti hann á að mikið hefði verið gert úr hugsanlegu samstarfi stjórnarandstöðuflokkanna eftir þingkosningar í vor og spurði hvort Samfylkingin og Vinstri - græn styddu stefnu frjálslyndra í málaflokknum.

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagði flokkinn ekkert hafa að fela og að landsfundurinn hefði verið opinn þeim sem vildu taka þátt í stjórnmálastarfi. Slíkt væri lýðræðislegt. Sagðist hana vona að Guðjóni Ólafi liði vel og afhenti honum málefnaská Frjálslynda flokksins.

Össur Skarphéðinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, sagði stefnu Samfylkingarinnar mjög ljósa, hún hefði verið lögð fram í þingsályktun á dögunum en enginn framsóknarmaður hefði verið viðstaddur umræður um hana. Þá sagði Mörður Árnason að framsóknarmenn hefðu ráðist gegn frjálslyndum í stað þess að ræða stefnu ríkisstjórnarinanr í málinu sem kynnt hefði verið í síðustu viku en hún væri aðeins fögur orð.

Guðjón Ólafur sagði hins vegar að spurningunni um það hvort Samfylkingin og Vinstri - grænir styddu stefnu frjálslyndra í innflytjendamálum væri ósvarað í umræðunum.

Kolbrún Halldórsdópttir, þingkona Vinstri - grænna, sagði hins vegar að greinilega væri einhver óróleiki í Framsóknarflokknum vegna slaks gengis hans í skoðanakönnunum að undanförnu.

Stefna Vinstri - grænna væri skýr í innflytjendamálum og flokkurinn hefði fagnað nýrri stefnu ríkisstjórnarnarinnar í málaflokknum en það væri upp á næstu ríkisstjórn komið að framfylgja henni. Skoðanakannanir bentu til þess að ríkisstjórnin myndi falla í vor en ríkisstjórnarmyndun færi ekki fram í þingsölum skömmu fyrir kosningar heldur eftir þær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×