Alþingi í gíslingu stjórnarandstöðunnar - tröllhlegið um land allt 19. janúar 2007 12:08
Upplausnarástand ríkir enn á Alþingi. Stjórnarþingmenn sökuðu stjórnarandstöðuna í morgun um að halda Alþingi í gíslingu með grímulausu málþófi.Umræða um Ríkisútvarpsfrumvarpið stóð yfir til klukkan tvö í nótt og flutti enginn stjórnarandstöðuþingmaður styttri en einnar klukkustundar ræðu og Ögmundur Jónasson, sá sem lengst var í ræðustól í gær, talaði í tæpar fjórar klukkustundir.Stjórnarandstaðan freistar þess að höggva á hnútinn með sáttatilboði um að gildistöku frumvarpsins verði frestað fram yfir kosningar og vildi Össur Skarphéðinsson við upphaf þingfundar í morgun fá svar við því hvers vegna Framsóknarflokkurinn væri á móti slíkri sátt.Hann fékk það svar frá Jóni Sigurðsssyni, formanni flokksins, að þingmaðurinn væri að skemmta sér og menntamálaráðherra væri talsmaður ríkisstjórnarinnar í menningarmálum.Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hafnaði sáttartilboðinu, sem hún sagði ekkert annað en leikaraskap til að fela þau vandræði sem stjórnarandstaðan væri komin í. Hún spurði afhverju þetta þing ætti að afsala sér valdinu til meirihluta næsta þings. Húnminnti á að búið væri að ræða málið í 120 klukkustundir og spurði hvort menn væru ekki búnir að fá nóg.Fleiri stjórnarliðar tóku undir þetta, þeirra á meðal Guðjón Ólafur Jónsson, sem sagði að það væri tröllhlegið að þingmönnum stjórnarandstöðunnar út um allt land. Þessari stóru brandarakeppni stjórnarandstöðunnar væri lokið. Nú væri mál að linni.Sigurður Kári Kristjánsson, formaður menntamálanefndar, sagði að stjórnarandstaðan hefði hneppt Alþingi Íslendinga í gíslingu. Alþingi væri stórskaðað af framkomu stjórnarandstæðinga.
Mest lesið Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Innlent Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn Innlent Hættu leit eftir þrjá tíma að þeim sem féll útbyrðis úr Norrænu Erlent Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Innlent „Samfélagsleg ábyrgð þessa fyrirtækis virðist ekki vera nein“ Innlent Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Innlent Sæta lögreglurannsókn vegna níðsöngva um ísraelska herinn Erlent Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Innlent Íranir geti aftur byrjað að auðga úran eftir nokkra mánuði Erlent Ný kirkjuhandbók og kaldar kveðjur til ferðaþjónustunnar Innlent Fleiri fréttir Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Skýrslutökum írsku lögreglunnar lokið Veðurstofan nýtir ofurtölvu til að herma eftir hraunflæði „Samfélagsleg ábyrgð þessa fyrirtækis virðist ekki vera nein“ Óhress innviðaráðherra, öryggis- og varnarmál og ofurtölva Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Ný kirkjuhandbók og kaldar kveðjur til ferðaþjónustunnar Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn „Langflestir Grindvíkingar búa utan Grindavíkurbæjar“ Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Sósíalistar deila um peninga og metþátttaka í ólöglegri baráttugöngu Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál „Þurfum að huga að forvörnum“ Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Sjá meira