Innlent

Víkingasveit kölluð út á Dalvík

Fjórir menn úr víkingasveit ríkislögreglustjóra voru kvaddir að húsi á Dalvík  í gærkvöldi eftir að maður hringdi þaðan í neyðarlínuna og hótaði því að skjóta á hvern þann sem kæmi nærri húsi hans. Lögregla lokaði af götum í kringum húsið og hvatti íbúa nærliggjandi húsa til að vera ekki á ferli. Lögreglumenn náðu sambandi við manninn rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöldi og fengu hann til að gefast upp mótstöðulaust. Við fyrstu rannsókn fundust ekki skotvopn í húsinu. Maðurinn hefur átt við geðræn vandamál að stríða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×