Fótbolti

Stjarnan og Breiðablik unnu

Það var hart barist í leik Fjölnis og Stjörnunnar í kvöld.
Það var hart barist í leik Fjölnis og Stjörnunnar í kvöld. MYND/VALLI

Tveir leikir fóru fram í Landsbankadeild kvenna í fótbolta í kvöld. Breiðablik bar sigurorð af ÍR, 4-1. og Stjarnan vann Fjölni, 1-0, í Grafarvoginum. Breiðablik komst með sigrinum upp í þriðja sæti deildarinnar með 22 stig en Stjarnan er í fimmta sæti með 15 stig. Fjölnisstúlkur eru í sjötta sæti með tólf stig en ÍR í áttunda og næstneðsta sæti með fjögur stig.

Það var jafnræði með Breiðablik og ÍR í fyrri hálfleiknum í Kópavogi í kvöld. Greta Mjöll Samúelsdóttir kom Breiðablik yfir, 1-0 og þannig var staðan í hálfleik. ÍR jafnaði með marki frá Aðalbjörgu Mörtu Agnarsdóttur í upphafi síðari hálfleiks en eftir það tóku Breiðabliksstúlkur öll völd og gerðu út um leikinn með þremur mörkum frá Guðrúnu Sóleyju Gunnarsdóttur, Söndru Magnúsdóttur og Jónu Hauksdóttur.

Harpa Þorsteinsdóttir skoraði sigurmark Stjörnunnar gegn Fjölni í Grafarvoginum strax á sjöttu mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×