Innlent

Fjórðungur bíla á nagladekkjum um miðja nóvember

MYND/Róbert

Fjórðungur bifreiða í Reykjavík reyndist vera á nagladekkjum samkvæmt talningu sem gerð var um miðjan nóvember.

Það er nokkuð minna hlutfall en á sama tíma í fyrra en þá var um þriðjungur bifreiða á negldum dekkjkum. Fram kemur í frétt frá umhverfissviði borgarinnar að sterkt samband sé á milli fjölda bifreiða á negldum dekkjum og svifryksmengunar í borginni þar sem naglarnir spæni upp malbikið. Draga þurfi úr hlutfalli nagladekkja til að fækka þeim dögum þar sem mengunin fer yfir heilsuverndarmörk, en það gerðist síðast í gær.

Umhverfissvið bendir á að hlutfall negldra dekkja hafi tilhneigingu til hækka eftir því sem líður á veturinn en Reykjavíkurborg hafi í haust bent ökumönnum á að kynna sér aðrar gerðir hjólbarða en nagladekk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×