Danskur ríkisborgari í haldi Bandaríkjamanna í Írak 26. apríl 2007 11:48
Per Stig Möller, utanríkisráðherra Danmerkur, gagnrýndi í dag bandarísk yfirvöld fyrir að greina dönsku ríkisstjórninni ekki frá því að danskur ríkisborgari af íröksku bergi brotinn hefði verið í haldi Bandaríkjahers í Írak í marga mánuði. Möller greindi utanríkismálanefnd danska þingsins frá málinu í morgun en það var fyrst skömmu fyrir páska að dönsk yfirvöld fréttu af manninum. Eftir því sem fram kemur á fréttavef Politiken er maðurinn grunaður um að ógna öryggi í landinu eins og það er orðað. Möller sagði að maðurin hefði verið í haldi frá því í desember og að dönsk stjórnvöld hefðu haft samband við hann eftir páska. Sagði Möller bandarísk stjórnvöld hafa skýrt þessa ákvörðun sína með því að maðurinn hefði ekki verið skráður sem danskur ríkisborgari heldur Íraki. Haft er eftir Mogens Lykketoft, talsmanni jafnaðarmanna í utanríkismálum, að alvarlegt sé að danska ríkisstjórnin fái ekki upplýsingar um danska ríkisborgara í haldi í Írak. Bendir hann á að dönsk yfirvöld hafi verið í hópi stuðningsþjóða Bandaríkjamanna við innrásina í Írak. Segir á vef Politiken að maðurinn sem umræðir hafi verið handtekinn í nágrenni vopnalagers og að hann hafi verið sýknaður af öllum ákærum fyrir írökskum dómsstól. Honum sé hins vegar haldið vegna þess að talið sé að hann ógni öryggi í landinu. Per Stig Möller segir að reynt verði að ljúka málinu sem fyrst. Þá er Íraki með dvalarleyfi í Danmörku einnig í haldi í Írak en danska utanríkisráðuneytinu hefur ekki tekist að ná sambandi við hann. Báðir eru mennirnir í haldi í herbúðum nærri Bagdad.
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Erlent „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Innlent Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Erlent Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Innlent Fleiri fréttir Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Sjá meira