Örfáar tilkynningar um brot á reykingabanni 30. ágúst 2007 10:42
Aðeins hafa borist örfáar tilkynningar til Vinnueftirlitsins um brot á banni við reykingum á veitinga- og skemmtistöðum frá því að reykingabann tók gildi fyrir réttum tveimur mánuðum. „Þessi atvik eru teljandi á fingrum annarrar handar og komu upp skömmu eftir að bannið tók gildi," segir Gylfi Már Guðjónsson, umdæmisstjóri Vinnueftirlitsins í Reykjavíkurumdæmi þar sem langflestir skemmtistaðanna eru. Til samanburðar bárust 23 tilkynningar til Vinnueftirlitsins í Danmörku á fyrstu tveimur vikum reykingabanns þar í landi eftir því sem Jótlandspósturinn greindi frá í gær. Gylfi segir að Vinnueftirlitið og umhverfissvið Reykjavíkurborgar hafi samstarf í málaflokknum þannig að umhverfissvið tilkynni um allar ábendingar sem því berist um hugsanleg brot á reykingabanninu til Vinnueftirlitsins. Þær ábendingar sem borist hafi, hafi verið frá starfsmönnum eða gestum veitingastaða. „Reykingabannið var vel undirbúið og menn vissu af því með góðum fyrirvara hvenær það tæki gildi. Hins vegar hefur þetta verið enn rólegra en við áttum von á," segir Gylfi. Gylfi segir að þegar ábendingar berist um að reykingabann sé virt að vettugi fari Vinnueftirlitið á staðinn og kanni hvort það sé rétt. Ef svo reynist vera séu gerðar athugasemdir við það. Hann segir að mál þurfi að vera komin í verulegar ógöngur til þess að það reyni á viðurlög í málaflokknum. Þau séu að höfða mál gegn þeim sem brýtur lögin.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Fleiri fréttir Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sjá meira