Lífið

Tom Jones spilar á Díönu tónleikum

Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar

Söngvarinn og hjartaknúsarinn Tom Jones og rapparinn P Diddy koma fram á tónleikum til minningar um líf Díönu prinsessu á Wembley leikvanginum í London. Tónleikarnir verða á afmælisdegi prinsessunnar 1. júlí næstkomandi en þá hefði hún orðið 46 ára. Söngvarinn Will Young og kanadíska stjarnan Nelly Furtado eru einnig á lista tónlistarmanna sem koma fram.

Vilhjálmur og Harry bretaprinsar eiga heiðurinn af skipulagningu tónleikanna sem marka tíunda árið frá dauða hennar. Á fréttavef BBC er haft eftir prinsunum að viðburðurinn verði „besta afmælisgjöf sem hún hefur fengið." Þeir munu birtast á sviðinu einhvern tíman á meðan fimm klukkutíma dagskráin stendur yfir.

Roger Hodgson úr Supertramp hljómsveitinni kemur einnig fram, en hljómsveitin mun hafa verið í uppáhaldi hjá prinsessunni.

Áður hafa Elton John, Take That og Lily Allen verið staðfest.

Aðrir sem koma fram eru meðal annars Duran Duran, Status Quo, Rod Stewart, Pharrel Williams og Joss Stone.

Meðal atriða á tónleikunum verður sýning frá breska ballettinum og tónlist frá Andrew Lloyd Webber.

Fyrstu 22 þúsund miðarnir seldust upp á mínútum í desember, og 10 þúsund til viðbótar voru gefnir út í apríl.

Tónleikunum verður sjónvarpað beint um heimsbyggðina og er gert ráð fyrir að milljónir manna muni setjast fyrir framan sjónvarpstækin og horfa á.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.