Innlent

Núllið úrelt

Núllið við Bankastræti.
Núllið við Bankastræti. MYND/Rósa

Verið er að skoða fyrirkomulag almenningssalerna í miðborg Reykjavíkur. Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar skoðar sérstaklega breytingar á Núllinu, almenningssalerni, sem er neðanjarðar við Bankastræti. Salernið þykir úr takt við breytta tíma en aðgengi fatlaðra að salerninu er verulega ábótavant. Hugsanlegt er að reisa nýja salernisaðstöðu undir tónlistarhúsinu sem verið er að byggja við Reykjavíkurhöfn.

Á síðustu árum hefur nokkrum salernisturnum, sem eru með sjálfvirkum hreinsibúnaði, verið komið fyrir í borginni. Fimm slíkir turnar eru í borginni og verið er að finna stað fyrir þann sjötta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×