Innlent

Níðstöng reist gegn Alþingi

Lögreglumenn fjarlægja níðstöngina.
Lögreglumenn fjarlægja níðstöngina. MYND/Þorri Lú

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fjarlægði í hádeginu í dag níðstöng sem reist hafði verið á Austurvelli. Stöngin var lögð upp að styttu Jóns Sigurðssonar.

Á stönginni var hauskúpa af hrossi en engin önnur sýnileg skilaboð að sögn lögreglu. Líklegt þykir að stöngin hafi verið reist þegar mótmælendur Kárahnjúkavirkjunar frömdu svartagaldur á Austurvelli í gærkvöldi. Tilefnið var gangsetning virkjunarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×