Hæstiréttur braut gegn Mannréttindasáttmála Evrópu 19. desember 2007 19:00
Hæstiréttur Íslands braut gegn ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu um réttlæta málsmeðferð samkvæmt nýföllnum dómi Mannréttindadómstóls Evrópu. Málið á rætur að rekja til ársins 1999. Þá seldi málshöfðandi, Súsanna Rós Westlund, fasteign í Vesturbæ Reykjavíkur. Nokkru síðar krafðist kaupandinn skaðabóta þar sem hann taldi sýnt að í húsinu væru leyndir gallar. Málið fór fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur sem dæmdi Súsönnu til að greiða skaðabætur. Hún áfrýjaði til Hæstaréttar og krafðist þess að bæturnar yrðu felldar niður en til vara að þær yrðu lækkaðar. Hæstiréttur meinaði hins vegar Súsönnu að flytja málið munnlega eða skriflega eftir að kaupandinn ákvað ekki að taka til varnar. Var þetta í samræmi við skilning Hæstaréttar á 158. grein laga um meðferð einkamála. Hæstiréttur staðfesti síðan niðurstöðu Héraðsdóms. Súsanna kærði málið til Mannréttindadómstóls Evrópu og féll dómur síðastliðinn föstudag. Samkvæmt niðurstöðu Mannréttindadómstólsins braut Hæstiréttur Íslands gegn 6. grein Mannréttindasáttmála Evrópu þar sem kveðið er á um rétt manna til réttlátrar og opinberrar málsmeðferðar. Þá var íslenska ríkið ennfremur dæmt til að greiða Súsönnu 2.500 evrur í miskabætur, eða um 225 þúsund krónur, og 18.000 evra, eða 1,5 milljón króna, í málskostnað að viðbættum vöxtum.
Mest lesið Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér Erlent Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu Innlent „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Innlent Fjölgun eldri kvenna í Kvennaathvarfi: „Þessar konur bíða ekki“ Innlent Skapari Call of Duty lést í bílslysi Erlent Allt annað barn eftir nokkrar vikur í Suður-Afríku Innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Hiti geti mest náð átján stigum Veður Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Innlent „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórnin greiðir fyrir flutning hinna látnu til Íslands Ráðning ráðgjafafyrirtækja skekki myndina milli stjórnar og stjórnarandstöðu „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Fjölgun eldri kvenna í Kvennaathvarfi: „Þessar konur bíða ekki“ Ráðist á pilt á heimleið Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Vestmannaeyingar fá að eiga Vestmannaeyjar Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Höfðu samband við dönsku herstjórnina á Grænlandi Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Glæný Maskínukönnun og jólaóveður Ársæll hringdi beint í utanríkisráðherra eftir fundinn Ósannað að fimmtán ára stúlka hafi stungið sextán ára pilt tvisvar Sameina Farice, Öryggisfjarskipti og hluta Neyðarlínunnar Gaf fingurinn á Miklubraut Birtir drög að lögum um lagareldi: Hyggst leggja niður Fiskeldissjóð Hundrað og fjörutíu milljarða bótakrafa á Samherja sé súrrealísk Skemmdir í kirkjugörðum vegna aksturs utan vegar Ólýsanlegur harmur fyrir fjölskylduna og söfnun hleypt af stokkunum „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Vill leiða lista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ „Þetta hefur verið þungur tími“ Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Sjá meira