Ekki ástæða til að endurskoða veru friðargæsluliða í Afganistan 7. nóvember 2007 15:20 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra. MYND/GVA
Ekki er ástæða til að endurskoða veru íslenskra friðargæsluliða í Afganistan að mati Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, spurði ráðherra hvort þess væri að vænta að íslenskir friðargæsluliðar verði kvaddir heim frá Afganista. Vísaði Steingrímur til nýrra laga um íslensku friðargæsluna sem kveða á um að hún eigi einungis að starfa undir borgarlegum og mannúðlegum merkjum. Þá spurði Steingrímur þess hvort ráðherra telji að þáttaka íslenskra friðargæsluliða í verkefnum á vegum Nató sé samrýmanlegur lögunum um íslensku friðargæsluna. Í svari Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra, kom fram að nú séu 15 íslenskir friðargæsluliðar starfandi í Afganistan. Tíu starfi við rekstur flugvallarins í Kabúl og hinir að öðrum borgarlegum verkefnum. Taldi ráðherra þá starfa innan ramma laganna um íslensku friðargæsluna og því væri ekki ástæða til að endurskoða veru þeirra þar. Staðan verði hins vegar endurmetin ef aðstæður á svæðinu breytast. Ingibjörg benti ennfremur á að hún telji þátttöku íslensku friðargæslunnar í verkefnum á vegum Nató samrýmast lögum. Gæsluliðarnir geti starfað innan hernaðarskipulags og verið með tign en þeir starfa ekki við að koma á frið heldur að reyna varðveita hann.
Mest lesið Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Erlent Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Innlent Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Innlent Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Innlent Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Erlent Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Innlent Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Innlent Hvalfjarðargöng eru lokuð Innlent Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Innlent Fleiri fréttir Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Enn annað innbrot í Laugardalnum Ráðherra um árásir, lögblindur sjúkraþjálfari og álftarungar á hóteli Hvalfjarðargöng eru lokuð Bíll valt eftir aftanákeyrslu Símasambands- og netlaust fyrir austan Metfjöldi með doktorspróf úr HR „Við lifum ekki á friðartímum“ Krísa í Kattholti: Fólk losar sig við ketti á sumrin Íranir án bandamanna, svimandi hátt verðlag og krísa í Kattholti Sögulega lítið fylgi Framsóknar, veiðigjöld og Íran Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Tveir handteknir grunaðir um eignaspjöll Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sjá meira
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent