Kristinnn í bílveltu á Steingrímsfjarðarheiði 15. apríl 2007 12:22 MYND/GVA
Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður velti bíl sínum við Steingrímsfjarðarheiði í gærkvöld. Í samtali við fréttastofu sagðist Kristinn hafa verið á leið frá Ísafirði eftir kosningafund Frjálslynda flokksins í bænum þegar bíll hann rann út af í krapa og bleytu og valt Kristinn komst að sjálfsdáðum út úr bílnum og segist hafa sloppið ómeiddur. Töluverður snjór hafi verið á heiðinni og að hafi orðið honum til happs að hann fór út af veginum þeim megin sem skaflarnir voru meiri. Ökumaður sem kom aðvífandi hringdi á lögreglu sem kom og lét sækja bílinn og færði hann niður á Hólmavík. Kristinn fékk far þangað með björgunarsveitarmönnum að sunnan sem höfðu verið á fundi á Ísafirði. Hann hélt svo til Reykjavíkur með mönnunum. Kristinn segir veginn um Steingrímsfjarðarheiði nokkuð góðan og að hann hafi verið á vel búnum bíl og þetta sé fyrsta óhappið sem hann lendi í þau 20 ár sem hann hafi ekið heiðina. Kristinn segir að óhappið hafi engin áhrif á þátttöku hans í kosningabaráttu frjálslyndra fyrir þingkosningarnar en hann er í öðru sæti á lista flokksins í Norðvesturkjördæmi. Næstu skref séu að fá sér nýtt farartæki og halda ótrauður áfram. Kristinn er annar þingmaður kjördæmisins sem veltir bíl sínum á stuttum tíma. Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra og sveitungi Kristins frá Bolungarvík, slapp ómeiddur þegar hann velti bíl sínum í Öxnadal á miðvikudag.
Mest lesið Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Innlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Fleiri fréttir Kaffistofa Samhjálpar: Búið að finna mögulegt húsnæði á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Sjá meira