Traveling Wilburys: Collection - fjórar stjörnur 9. júlí 2007 06:15 The Traveling Wilburys Collection er flottur pakki sem inniheldur allt efni mestu súpergrúppu poppsögunnar.
Á The Traveling Wilburys Collection eru báðar plötur hljómsveitarinnar, nokkur aukalög og DVD diskur með þeim fimm myndböndum sem hún gerði og heimildarmynd um tilurð og sögu sveitarinnar. Semsagt allt það sem skiptir máli í einum pakka. Traveling Wilburys var einstök sveit í poppsögunni. Þessi mesta súpergrúppa allra tíma hafði innanborðs þá George Harrison, Bob Dylan, Roy Orbison, Tom Petty og Jeff Lynne. Hún varð til fyrir hreina tilviljun árið 1988 þegar Harrison þurfti að taka upp B-hliðarlag fyrir smáskífu. Sveitin hefði sennilega aldrei getað neitt ef einhver hefði reynt að hugsa hana upp og plana og hún virkaði svona vel af þeirri ástæðu helstri að fimmmenningarnir voru allir góðir vinir. Textar og lög Traveling Wilburys voru samin á staðnum og tekin upp nánast samstundis. Það segir eitthvað um hæfileika þessara fimm tónlistarmanna að báðar plöturnar eru fullar af fínum lagasmíðum. Annað sem maður tekur strax eftir er söngurinn. Roy Orbison (sem féll frá eftir gerð fyrri plötunnar) nýtur sín sérstaklega vel og hinir skila sínu líka vel hver með sínu nefi. Það er auðvitað mikill fengur í hljómsveit sem hefur Bob Dylan innanborðs og manni hlýnar um hjartarætur í hvert sinn sem karlinn hefur upp raust sína, enda virkar hann sérstaklega afslappaður og sáttur í þessu samstarfi. Traveling Wilburys heyrir sögunni til þar sem bæði Roy Orbison og George Harrison eru farnir yfir móðuna miklu. Collection pakkinn sem er unninn af hinu rómaða endurútgáfufyrirtæki Rhino Records setur punktinn aftan við feril hljómsveitarinnar. Hér er sagan öll. Trausti Júlíusson
Mest lesið Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Lífið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Gagnrýni Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Tónlist Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak Menning Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Menning Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið „Ég er skíthræddur“ Tónlist Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Lífið Fleiri fréttir Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Sjá meira