Málsókn prófessora í bígerð 25. október 2007 07:00 Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður flytur málið.
Félag prófessora við ríkisháskóla hyggst stefna fjármálaráðuneytinu fyrir félagsdóm þar sem það hefur neitað að viðurkenna félagið sem samningsaðila í kjarasamningum fyrir prófessora. Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður, sem vinnur að undirbúningi málsins, segir að niðurstöðum verði skilað til félagsmanna á næstu dögum. Prófessorar voru áður undir kjaranefnd. Þegar lagabreytingar um hana gengu í gegn í fyrra heyrðu málefni félagsins því næst undir kjararáð sem kvað svo upp þann úrskurð í byrjun þessa árs að það hefði ekki úrskurðarvald um launamál prófessora. Þeir ættu því að leysa sín mál með kjarasamningum við ríkið. Gísli Már Gíslason, formaður Félags prófessora, segir að félagsmenn hefðu viljað semja við ríkisvaldið í gegnum félag þeirra. Hins vegar hafi samningsréttur félags þeirra ekki verið viðurkenndur og prófessorum því gert að semja í gegnum stéttarfélög hvers skóla. Við það vilji prófessorar ekki una. Gísli telur ekki forsvaranlegt að réttindabarátta prófessora sé dreifð innan fimm háskóla heldur eigi þeir að vera sameinaðir í eitt stéttarfélag. „Menn eru nú skikkaðir til að greiða í stéttarfélög án þess að vilja vera í þeim þar sem stéttarfélag okkar, sem hefur verið til frá árinu 1989, fæst ekki viðurkennt. Ég kannast ekki við að stéttarfélag hafi ekki fengist viðurkennt síðan á fjórða áratug síðustu aldar og finnst vinnubrögð fjármálaráðuneytisins í sovéskum anda," segir Gísli. Hann bendir auk þess á að þau stéttarfélög sem hann segir prófessora nú í hafi ekki samið fyrir prófessora og að launakjör þeirra ráðist ekki af þeim samningum sem þar eru í gildi. „Það á að stökkva okkur á dreif til að hafa ekki jafn sterka viðsemjendur," segir Björn Þorsteinsson, prófessor við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Hann bendir auk þess á að svokallað stigmat, sem Félag prófessora hefur notað við gæðamat á rannsóknum við háskóla, sé í uppnámi þar sem ríkið neiti að viðurkenna félagið. Stigmatið segir hann eitt mikilvægasta tæki sem notað er við mat á störfum prófessora sem eiga að vera leiðandi í rannsóknum. - kdk
Mest lesið Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Innlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Innlent Íslendingur lést vegna hitaslags Innlent „Það hefði auðvitað verið betra“ Innlent Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Innlent Fleiri fréttir Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sóttu mann sem féll niður bratta Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Íslendingur lést vegna hitaslags Ókeypis veðmálasíður „ekki eins og áfengislaus bjór“ „Staðan er alvarleg en við vitum ekki hversu alvarleg hún er“ Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Stuð og stemning á fjölskyldudögum í Vogum Fagna sekt vegna veðmálaauglýsinga og tjón eftir vatnsveður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Sjá meira