Innlent

Málsókn prófessora í bígerð

Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður flytur málið.
Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður flytur málið.

Félag prófessora við ríkisháskóla hyggst stefna fjármálaráðuneytinu fyrir félagsdóm þar sem það hefur neitað að viðurkenna félagið sem samningsaðila í kjarasamningum fyrir prófessora. Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður, sem vinnur að undirbúningi málsins, segir að niðurstöðum verði skilað til félagsmanna á næstu dögum.

Prófessorar voru áður undir kjaranefnd. Þegar lagabreytingar um hana gengu í gegn í fyrra heyrðu málefni félagsins því næst undir kjararáð sem kvað svo upp þann úrskurð í byrjun þessa árs að það hefði ekki úrskurðarvald um launamál prófessora. Þeir ættu því að leysa sín mál með kjarasamningum við ríkið. Gísli Már Gíslason, formaður Félags prófessora, segir að félagsmenn hefðu viljað semja við ríkisvaldið í gegnum félag þeirra. Hins vegar hafi samningsréttur félags þeirra ekki verið viðurkenndur og prófessorum því gert að semja í gegnum stéttarfélög hvers skóla. Við það vilji prófessorar ekki una.

Gísli telur ekki forsvaranlegt að réttindabarátta prófessora sé dreifð innan fimm háskóla heldur eigi þeir að vera sameinaðir í eitt stéttarfélag. „Menn eru nú skikkaðir til að greiða í stéttarfélög án þess að vilja vera í þeim þar sem stéttarfélag okkar, sem hefur verið til frá árinu 1989, fæst ekki viðurkennt. Ég kannast ekki við að stéttarfélag hafi ekki fengist viðurkennt síðan á fjórða áratug síðustu aldar og finnst vinnubrögð fjármálaráðuneytisins í sovéskum anda," segir Gísli. Hann bendir auk þess á að þau stéttarfélög sem hann segir prófessora nú í hafi ekki samið fyrir prófessora og að launakjör þeirra ráðist ekki af þeim samningum sem þar eru í gildi.

„Það á að stökkva okkur á dreif til að hafa ekki jafn sterka viðsemjendur," segir Björn Þorsteinsson, prófessor við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Hann bendir auk þess á að svokallað stigmat, sem Félag prófessora hefur notað við gæðamat á rannsóknum við háskóla, sé í uppnámi þar sem ríkið neiti að viðurkenna félagið. Stigmatið segir hann eitt mikilvægasta tæki sem notað er við mat á störfum prófessora sem eiga að vera leiðandi í rannsóknum. - kdk




Fleiri fréttir

Sjá meira


×