Tap fyrir Spánverjum - Stórleikur Árna Gauts dugði ekki 28. mars 2007 21:49 Emil Hallfreðsson átti ágæta spretti í fyrri hálfleik í kvöld, en eins og sjá má á myndinni voru skilyrðin alls ekki góð vegna ausandi rigningar AFP
Íslenska landsliðið tapaði 1-0 fyrir því spænska í leik liðanna á Mallorca í undankeppni EM í kvöld. Sigur Spánverja var fyllilega verðskuldaður og hefði orðið miklu stærri ef ekki hefði verið fyrir stórleik Árna Gauts Arasonar í íslenska markinu. Það var miðjumaðurinn Andres Iniesta sem skoraði sigurmark spænska liðsins þegar tíu mínútur voru til leiksloka. Íslenska liðið spilaði stífan og agaðan varnarleik í kvöld eins og reikna mátti með. Spánverjar fengu nokkur góð færi í fyrri hálfleiknum en höfðu ekki heppnina með sér. Ólafur Örn Bjarnason átti líklega hættulegasta færi íslenska liðsins rétt fyrir hlé, en hann skaut framhjá eftir að boltinn barst til hans eftir hornspyrnu. Segja má að aðeins eitt lið hafi verið á vellinum í síðari hálfleiknum, en þar var það Árni Gautur sem var allt í öllu. Ein af bestu tilþrifum hans voru einmitt þegar hann varði vel frá téðum Ólafi Erni sem misreiknaði sig í varnarleiknum. Spánverjarnir gerðu sig hvað eftir annað líklega til að skora, en Árni varði eins og berserkur og átti stórleik í kvöld. Hann átti þó ekki svar við skoti Iniesta á 80. mínútu og niðurstaðan því enn eitt tapið hjá Íslenska liðinu - sem hefur ekki séð til sólar síðan það vann frækinn sigur á toppliði Norður-Íra í Belfast forðum. Ekki er hægt að segja að niðurstaðan í kvöld hafi verið annað en sanngjörn, því spænska liðið skoraði mark sem dæmt var af og átti klárlega að fá vítaspyrnu. Dómarinn var því íslenska liðinu nokkuð hliðhollur í kvöld. Norður-Írar eru á toppi riðilsins með 13 stig úr 6 leikjum, Svíar hafa 12 stig úr 5 leikjum, Spánverjar 9 stig úr 5 leikjum, Danir 7 stig úr 4 leikjum, og Lettar, Lichtenstein og Ísland með 3 stig hvert.
Mest lesið Féll næstum því í Harvard vegna höfuðverkjanna Fótbolti PSG verðskuldaður sigurvegari Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Ísak í einkaflugi út að semja við erkifjendurna Fótbolti Benedikt hættur með Tindastól Körfubolti Leikdagur í Munchen: Gummi Ben og Kjartan hita upp fyrir stærsta leik ársins Fótbolti Walker í vandræðum og verður ekki áfram hjá City Enski boltinn Þór dregur liðið úr keppni í efstu deild Körfubolti Dagur Dan kallaður inn í íslenska landsliðið Fótbolti Leiknir lætur þjálfarann fara Fótbolti Tottenham lætur fimm fara og festir fyrstu kaup sumarsins Enski boltinn Fleiri fréttir „Draumar rætast“ Fékk draum sinn uppfylltan og heiðraði minningu látinnar dóttur sinnar Enrique hluti af fámennum hópi ótrúlegra sigurvegara Arsenal í viðræðum við Leipzig vegna Šeško Öll fimm mörkin í ótrúlegum sigri PSG PSG verðskuldaður sigurvegari Meistaradeildar Evrópu Kristian Nökkvi kominn með nýjan þjálfara Lið Loga fer illa af stað Walker í vandræðum og verður ekki áfram hjá City Arnór og Arnór meiddir rétt fyrir landsleikjahlé Ísak í einkaflugi út að semja við erkifjendurna Leiknir lætur þjálfarann fara Tottenham lætur fimm fara og festir fyrstu kaup sumarsins Mexíkó hyggst halda HM 2031 með Bandaríkjunum Fyrrum forseti Inter látinn og liðið mun leika með sorgarbönd Dagur Dan kallaður inn í íslenska landsliðið Leikdagur í Munchen: Gummi Ben og Kjartan hita upp fyrir stærsta leik ársins Féll næstum því í Harvard vegna höfuðverkjanna Mikil öryggisgæsla í París þótt að úrslitaleikurinn fari fram í München Ancelotti: Brasilíska landsliðið mitt mun spila eins og Real Madrid Njarðvík og ÍR upp í efstu sætin í Lengjudeildinni „Við í rauninni töpum tveimur stigum“ Beever-Jones með þrennu í fyrsta landsleiknum sínum á Wembley Stelpurnar hennar Betu réðu ekki við heimsmeistarana í lokin „Gengur kannski illa að vinna leiki en við vinnum bara réttu leikina“ Fyrrum aðstoðarmaður Klopp aðstoðar Guardiola á næsta tímabili Harder tryggði Dönum dýrmætan sigur Sjáðu frábæra afgreiðslu Sveindísar Jane Ungu strákarnir björguðu andliti Man United í Hong Kong Uppgjörið: Noregur - Ísland 1-1 | Dýrt sjálfsmark kostaði sigurinn Sjá meira