Dæmd fyrir morðið á eðalbornum eiginmanni sínum 25. maí 2007 22:59 Eiginkonan fláráða fyrir rétti. MYND/AFP
Ekkja jarlsins af Shaftesbury var í dag dæmd í 25 ára fangelsi fyrir að myrða hann. Líkið af jarlinum fannst í gljúfri í Ölpunum árið 2005. Eiginkonan, Jamila M'Barek var fundin sek um að leggja á ráðin um morðið en hún fékk bróður sinn til að drýgja ódæðið. Bróðirinn, Mohammad, fékk sama dóm. Saksóknari sagði hana hafa komið eiginmanninum fyrir kattarnef í því augnamiði að komast yfir auðæfi hans. Morðið á jarlinum, Anthony Ashley-Cooper, vakti mikla athygli á sínum tíma en hinn 66 ára gamli aðalsmaður var þekktur glaumgosi. Hann hvarf af hótelherbergi sínu á frönsku rívíerunni í nóvember árið 2004 en líkið fannst ekki fyrr en fimm mánuðum síðar. Bróðir eiginkonunnar játaði að hafa orðið honum að bana en sagðist hafa kyrkt hann „óviljandi". Á heimasíðu BBC er haft eftir eiginkonunni í réttarsalnum í Frakklandi að hún hafi ekki gifst jarlinum til fjár. Hún hafi í raun elskað hann en að bölvun hafi verið á ráðahagnum allt frá byrjun. Sonur jarlsins og núverandi jarl af Shaftesbury sagði fyrir rétti að hann hefði aldrei trúað því að Jamila hafi elskað föður hans og sagði hana illgjarna manneskju. Rétturinn komst að þeirri niðurstöðu að systkynin væru sek, en lögmenn þeirra hafa áfrýjað dómnum.
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Fleiri fréttir Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Sjá meira